Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
17.7.2008 | 09:42
Fífusel 37
Hér sit ég í borg óttans og er stödd í Fífuseli 37 í góðu yfirlæti eins og alltaf hjá þeim Hrönn og Alla. i þetta er búin að vera frábær ferð! Ég er reyndar búin að labba af mér lappirnar við það eitt að reyna að vera gella hér í rvk þar sem að enginn þekkir mig. Hvað er að manni segi ég bara. Ég labbaði niður laugarveginn í gær morgunn frá vinnunni hennar Hrannar. Guð finnst það bara geggjað að vera bara ein með sjálfri mér svona annað slægið. Bara rölta og kíkja þessvegna í allar búðirnar og skoða eða versla án þess að einhver sé að bíða eftir manni. Síðan pikkuðu Stella og Kristín mig upp eftir hádegi, þá var ferðinni heitið niður í kringlu að kaupa KJÓLINN;) Og hann fannst fljótlega, Bara geggjað flottur! Hún Stella verður the babe 2. ágúst 2008. En eins og ég sagði að þá er ég sko í góðu yfirlæti hér í selinu og bara yndislegt að vera hérna. Takk fyrir mig Alli og Hrönn!!!
Svo langar mig að óska Guðna frænda og Indu til hamingju með litlu Dagmar. Hún er algjör beutybolla!!! Og til hamingju með strákinn Úrsula og Heimir. Það er bara allt að gerast.
Þóra kveður úr borginni.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2008 | 21:15
Helgin.
Er ekki komin tími á blogg hérna?
Annars er helgin búin að vera svona öðruvísi en maður er vanur. En mjög skemmtileg samt! Ingvar kom í land á fimmtudaginn og við tókum öll göngu upp á skarði í þokunni. Það var bara æði samt. Við fylgdumst mjög áhugasöm með öllum rokkurunum sem að komu í bæinn, enda ekki annað hægt en að glápa svona á suma hverja þarna Síðan eftir að við vorum öll búin að kíkja niður í Egilsbúð á tónleika þá fórum við með Hjálmari, Sólveigu og Rebekku í Hellisfjörð og grilluðum. Bara yndislegt að koma þangað. Hjálmar is the grill master ha ha ha.
Eftir að heim var komið um kvöldið og börnin farinn að í rúmið og barnapían komin, röltum við á Sollu og Hjalla í iris coffe.
Ég fór á næturvakt í gærkvöldi og í morgunn þegar að ég kom heim að þá sá ég að öll hjólin á heimilinu lágu hér á víð og dreif um bílastæðið. Skildi ekkert í þessu fyrr en ég sá að hjólið hans Stefáns var horfið;( Glænýtt hjól. Eftir mikla leit í dag að þá var einhver góðhjartaður maður sem að dró það upp úr skurði inn vita. VÁÁ... hvað ég var fegin en samt svo svekkt yfir þessu. við erum að tala um það að einhverjir voru bara að snuðrast hér við húsið mitt í nótt og bara við gluggann hjá Elísabetu því að þar voru hjólin á bak við. Já svona eru sumir óforskammaðir. Stela hjólum að börnum!!!
Jæja á bara eina næturvakt eftir og svo komin í sumarfrí baby;)
síjú later .
Í göngu
MÝRIN
Á tónleikum
Elísabet og Rebekka á leið í Hellisfjörð
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.7.2008 | 22:15
ÞOKUBLOGG;)
Einhvertímann heyrði ég þá sögu að þokan væri prinsessa í álögum. Og ef allir mundu hugsa vel til þokunnar á sama tíma mundi hún fara og aldrei koma aftur.. já og að prinsessan yrði laus úr álögunum
Við getum náttúrulega verið fullviss um það að ekki væri hægt að fá alla til að hugsa vel til þessara helv... þoku sem er búin að liggja hér yfir firðinum fagra núna í viku eða svo En já svona er þetta bara.
Við gerðum heiðarlega tilraun til að fara úr þokunni í morgunn og skelltum okkur yfir á Eskifjörð í sund með Sólveigu og Rebekku. Það var hrópað húúrrra.. þegar að við sáum út um göngin Eskifjaðrað megin. Því að við sáum bara sólina skína inn um opið hinumegin. En vitið menn, þegar að við keyrðum út að þá lá þessi líka svartaþoka yfir Eskif.. og Reyðarf. Vá hvað það voru mikil vonbrigði!!! Ingvar er að koma í land í fyrramálið og fer sennilega út aftur á sunnudaginn. það verður sennilega gert eitthvað skemmtilegt um helgina. Eistnaflug er að sjálfsögðu helgina og ég var að heyra að það væri búið að kaupa um 1000 miða inn!!! Það er rosalegt.
Það verður bara mjög gaman að fá nýtt fólk í bæinn og bara hrein skemmtun að sjá alla pönkarana og rokkarana labba hér um í þessum rólega bæ;)
Hafið það gott um helgina.
Smellið 2 svar á myndina til að sjá hana stóra .
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.7.2008 | 13:44
Vakna snemma í júlí!!!
Ég held að við verðum vakin snemma í júlí hér á Nesbakka 16. Það er verið að skipta um þak hér á húsinu ská fyrir neðan okkur og mín bara hrökk upp í morgunn við bara þvílíku brakið og brestina
Þeir sem að þekkja mig vita alveg að ég get látið svona hluti fara í taugarnar á mér enda var eins og einhver væri inn í herberginu mínu að brasa eitthvað. hávaðinn var eftir því. En ég má ekki láta þetta fara í taugarnar á mér Mér finnst samt að allir eigi að virða það að ég vilji sofa út í fríinu!!! ;)
Það fer sko ekki framhjá neinum að prinsinn er kominn heim úr frábærri dvöl í sveitinni og á eiðum í listabúðunum. En ég er alveg búin að sjá að það var sko gott fyrir okkur bæði að fá smá pásu frá hvort öðru þó að ég segi sjálf frá. Það er gott að finna að maður sakni einhvers og hlaða batteríin upp á nýtt. Enda finn ég það bara að þolinmæðin töluvert meiri he he. Hann Stefán hætti á ritalini þegar að skólinn var búinn. Það verður bara að segjast að honum lýður svo mikið betur. Hann er búinn að fá lystina aftur og hann er bara glaður og ánægður. Hann segir það líka bara sjálfur að honum lýði betur og segist bara aldrei vilja sjá þessar töflur aftur Það verður bara að koma betur í ljós þegar að skólinn byrjar. Jæja ætla að fara með liðið í sund. Elli junior er hjá okkur og þegar að færist fjör í leikinn að þá er best að fara með þau í sund og djöflast þar. Þá lýður öllum betur á eftir.
bless bless á meðan.
Stefán að gæða sér á köku;)
Sigga, Elli og Stefán á eiðum.
4.7.2008 | 11:54
Hvað finnst ykkur um þetta?
Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að segja! Ég finn mikið til með þessu fólki og bara hreinlega fékk tár í augun að sjá viðtalið við þessa konu með ungabarnið sitt og vissi ekki um framtíð hennar né fjölskyldu. Maðurinn hennar er á dauðalista út í Keníu og verður mjög líklega sendur þangað. Ef það á að hjálpa einhverju fólki þá held ég að það sé flóttafólki eins og þessu. En ég hef samt alltaf sagt að við eigum samt að takmarka komu útlendinga hingað til Íslands.
Já þetta er sorglegt
Er farin upp í hérað að ná í prins Stefán.
kveðja Þóra
![]() |
Fjölskyldu fleygt úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2008 | 12:52
Rólegir dagar.
Það er alveg svakalega rólegt hjá okkur mæðgum hér þessa dagana. Stefán er upp á héraði og skemmtir sér konunglega. Við erum að tala um það að það er búið að rigna stanslaust í 2 sólahringa! Maður er svona að reyna að halda ró sinni en ég fer bráðum alveg að tapa gleðinni hérna. Það er heldur ekki bara það að það rignir stanslaust, heldur allur júní búin að vera sólarlaus með meiru. Það spáir sól og blíðu um helgina samt. VEIIII... Ingvar kemur í land í næstu viku, en stoppar stutt. Svo verður bara komin vesló áður en maður veit af. Ég er að fara í sumarfrí núna miðjan júlí. Æ hvað það verður nú gott. Ég finn það eftir svona tarnir á næturvöktum að þá verð ég bara eitthvað hálf drusluleg og ringluð í svolítinn tíma á eftir. Ég tók myndarvélina með mér upp í hérað um daginn og ætlaði nú aldeilis að vera dugleg að mynda! En það bara var ekkert sérstakt veður til þess. Ég veit ekkert meira slakandi en að fara ein með myndarvélina og taka myndir bara af einhverju sem að mér dettur í hug. Eitthvað sem að mér finnst spennandi. Enda segir Ingvar stundum við mig: bíddu hvað er þetta? Þá er kannski mynd af þara eða eitthvað
. Enda eru áhugamálin fyrir mann sjálfan en ekki aðra segi ég.
Klikkið 2 sinnum á myndina til að skoða hana stóra.
Upp á þjóðvegi....
Þær hafa hugsað hvað er þessi bjáni að gera þarna niðurfrá;)
Reyðarfjörður.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.6.2008 | 22:37
Eldsneyti!
Eins og allir vita að þá hefur eldsneyti hækkað alveg gífurlega síðustu mánuði og fer enn hækkandi! Það liggur við að maður sé hættur að ergja sig á þessu þegar að maður sér að það hefur hækkað. Það hækkar líka ekki bara um örfáa aura, heldur krónur. Ég fór nú samt að pæla í einu, og það er það að við fjölskyldan ásamt öðrum sjómanns fjölskyldum erum að borga meira heldur en margir aðrir. Við erum að tala um það að Ingvar er að borga olíuna á skipinu sem að hann vinnur á! Þetta væri eins og að þið væruð að borga rafmagnið á vinnustaðnum ykkar eða vörubílstjórar eða þeir sem að vinna við keyrslu og slíkt væru að borga olíuna eða bensín á vélarnar hjá fyrirtækinu sem þeir vinna hjá. Mér gremst þetta gífurlega! Þetta er til háborinnar skammar að menn sem að fara frá fjölskyldum sínum marga daga eða vikur, mánuði að heiman þurfi að borga fyrir það. Ég held að sjómenn láti margt yfir sig ganga í samnings málum. En þeir vita það líka að ef þeir láta eitthvað heyra í sér að þá hefur það bara verið þannig í gegnum tíðina að þeim er bara hótað. Það kemur bara maður í manns stað. Mönnum er sagt upp plássunum sínum þegar að skip eru seld og það er ekki endilega víst að þeir fái pláss á nýju skipi sem kemur í staðin og ekki víst að það verði neitt nýtt skip keypt. Já Það er ekki mikil öryggistilfinning að vera sjómaður, það er eitt sem er víst. Þetta er vanmetið starf.
Þetta er mín skoðun og þarf ekki að spegla skoðun annarra
En út í aðra og rólegri sálma he he. Börnin mín eiga flug til Egilst.. á morgunn. Æ hvað verður gott að fá þau heim. Reyndar verður Stefán eftir hjá Ella Steina og co, og hlakkar mikið til. Eins og ég greindi frá í fyrri færslu að þá fóru börnin mín í heimsókn á Kvíabryggju. Þeim fannst þetta æðislegt og það var mikið leikið sér og mikið fjör. Elísabet skellti sér í sjómann við Kalla Bjarna og vann hann að sjálfsögðu á báðum he he. Hún var nú ekki á því að þetta væri fangelsi og sagði að þetta væri gistiheimili og því var ekki haggað Ég er alveg á því að þau hafa haft sannarlega gott af þessari reynslu og gleyma henni seint. Ég vil bara þakka þér kæra Birgitta fyrir börnin mín svona ef að þú lest bloggið mitt kæra frænka
Kveð í bili.
Er á leiðinni á næturvakt og góða nótt.
27.6.2008 | 15:09
Jæja þá...
Jæja þá er að blogga eitthvað. Það er ekki eins og ég hafi neitt mikið annað að gera. En annars hringdi Birgitta frænka í mig sem að nota bene er með börnin mín og spurði mig hvort að hún mætti fara með þau í smá heimsókn í dag. Það er svosem ekki mjög svo venjuleg heimsókn, því að ferðinni var heitið á kvíabryggju! að heimsækja frænda okkar þar. En þar eru þeir með álftarunga sem að honum langaði svo að sýna krökkunum já og hann hefur aldrei séð þau frá því að þau fæddust, þó að hann sé ömmubróðir þeirra. Ég bara sagði henni að drífa sig enda hefðu þau bara gott af því að sjá hvernig þetta er he he. Það verður gaman að fá fréttir af þeim í kvöld. Birgitta sendi mér mynd þar sem að Elísabet er að gefa einum unganum að borða.
Ég skellti mér í það að mála einn vegg í stofunni hjá mér í fyrradag og fékk mér borðstofuborð og stóla í stofuna. Kemur rosa vel út.
Jæja hef ekki meira að segja í bili. ég lýg því nú kannski smá að ég hafi ekkert að gera, ég gæti alveg verið að taka til í þessu blessaða húsi
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 08:59
61 DAGUR!!!
Það er 61 dagur þangað til fjölskyldan fer til útlanda öll saman í fyrsta skiptið. Ferðinni er heitið til Tenerife og það fór hrollur um mig þegar að ég hugsaði um þetta langa ferðalag með 2 börn. Ég er með svokallaðan ferðakvíða, sem að ég næ ekki að stjórna. Ég hef nokkrum sinnum farið úr landi og setið í flugvél í 12 tíma og ekkert mál, en þá þurfti ég líka bara að hugsa um sjálfa mig. Þetta er eitthvað með mig og í sambandi við börnin mín! Ég er kannski bara móðursjúk húsmóðir sem mundi helst vilja hafa börnin sín bara inni he he. Nei nei þið skiljið kannski hvað ég er að fara. En ég og Ingvar erum samt algjörir aular svona í útlandinu. Við tökum okkur helst ekki bílaleigubíl og keyrum um. Okkur finnst best að labba og skoða og taka leigubíl
. Þannig að við erum svona fólk sem að fer ekki víða að skoða hina og þessa staði. Enda er ég bara þannig að þegar að við höfum verið að fara í þessar áhafnarferðar að þá er mín bara meira fyrir það að vera með bjór í einni og sígó í hinni í sólbaði ha ha ha
. Það leyfi ég mér ekki eins mikið með börnin.
Ég er að pæla í að skella mér að mála einn vegg í stofunni og kaupa mér eitt húsgagn.
ADIOS Í BILI....
Á myndinni eru ég, Sólveig og Anna í bátsferð með köllunum okkar í Tyrklandi. Bara ljúft!!!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2008 | 22:49
Ein í kotinu.
Jæja þá er ég ein í kotinu. Stefán og Elísabet fóru suður í dag með flugi. Birgitta og co tóku á móti þeim á rvk flugvelli og börnin komu með bros á vör út úr vélinni;) En mamma aftur á móti fékk smá móðursýkiskast þegar að hún kvaddi ungana sína um leið og þau stigu upp í vélina. Ég verð að viðurkenna það að ég átti bara frekar erfitt!!! Ég hef aldrei sent þau neitt í burtu.En mín átti allan tímann í heiminum og kíkti í smá kaffi til Ella og Vivi í Fellabænum og svo í smá búðaráp.
Helgin var frábær og við stelpurnar hittumst á laugardkv.. heima hjá Sólveigu. Við hittumst til að fagna því að Stella væri að fara að gifta sig í ágúst honum Helga sínum. Get ekki kallað þetta gæsunn, en þetta var gæsapartý;) Gæsin skemmti sér rosalega vel og við mjög ánægðar með kvöldið. Við hummuðum ásamt mörgu öðru he he
En jæja hef þetta ekki lengra í bili því að ég er að fara á næturvakt gott fólk. bless á meðan.