22.6.2008 | 22:02
Þarna erum við. Gæsapartý Stellu.
20.6.2008 | 15:11
;O)
Jæja góðir hálsar, Nú er ein helgin í viðbót að byrja.
Tíminn er svo svakalega fljótur að lýða. Ingvar kom í land í gær og fer aftur annað kvöld. Stutt þessi stopp hjá þeim! Stefán og Elísabet eru að fara suður á mánudag í sveitina til Birgittu og co, og verða í tæpa viku. Elísabet hefur miklar áhyggjur af móður sinni á meðan þau eru í burtu og sagði að henni þætti svo leiðinlegt að skilja mig eftir eina heima. Hún á það nefnilega til að afsaka sig þegar að hún er búin að vera lítið heima og segir: Mamma ég skal lofa að gera eitthvað skemmtilegt með þér á morgunn svo að þú sért ekki svona mikið ein ha ha ha. Það er ekki eins og ég sé eitthvað búin að vera kvarta við hana. Og það er svo skrítið hvað sum börn eru með mikla ábyrgðartilfinningu.
Helgin verður skemmtileg og margt á dagskrá. það verður sagt frá því síðar
Ég vil síðan óska henni Önnu Kristínu Magg vinkonu minni til hamingju með daginn og læt fylgja mynd af afmælisbarninu í tilefni dagsins.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.6.2008 | 22:08
Jæja þótt fyrr hefði verið segi ég!
Þá er búið að skjóta þennan blessaða bangsa!
Ég er ekki að segja að mér sé alveg sama. Því að mér finnst þetta fallegt dýr og allt það. En það hefði kannski ekki þótt jafn skemmtilegt ef að hann hefði nælt sér í einn fréttamann eða svo Það sem að fer mest í taugarnar á mér er að þeir eru tilbúnir að eiða stórfé í að flytja þetta grey úr landi og als konar í kringum þetta. Þegar að ríkistjórnin er ekki viss hvort að hún eigi að leggja pening í bólusetningu við leghálskrabbameini hjá ungum stúlkum!!! HVAÐ ER AÐ? Er það einhver spurning? Ríkir kallar eins Björgólfur Thor eru til í að borga brúsann til að reyna að halda einhverjum ísbirni á lífi frekar heldur en að gefa þá einhverja peninga í það sem að skiptir máli. Eða hvað finnst ykkur? munu þið heldur vilja nota skattpeningana ykkar í að bjarga bangsa eða lífi margra kvenna á komandi árum? En ég veit að bilið er frekar stórt á kostnaði þarna, en mér er alveg sama. Það er bara svo margt svona sem er í gangi sem að skattpeningarnir okkar eru að fara í. Heilbrigðiskerfið er gjörsamlega fjársvelt og við vitum ekki brot af því , fyrir utan fólkið sem þarf að kynnast því og það eru margar sorgarsögur sem að maður hefur heyrt af því þar sem að fólk hefur þurft að að ganga í gegnum margt bara vegna sparnaðar ríkisins.
Jæja þá er ég búin að blása og líður betur.
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 18.6.2008 kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.6.2008 | 16:57
Helgin að verða búin.
Jæja þá er helgin að verða búin og mér finnst ég nú ekki hafa gert neitt af viti. Það er svona þegar ég er á næturvöktum að þá verð ég alveg hrikalega löt á daginn. Krakkarnir koma ekki heim fyrr en á morgunn og eru búin að skemmta sér konunglega á ættarmóti. Elísabet sagði mér í dag að hún væri sko búin að eignast fullt af nýjum vinum. Hún á sko ekki erfileikum með að kynnast nýjum krökkum þessi elska. Þegar að við vorum í kringlunni og smáranum fyrir sunnan í apríl að þá máttu við ekki setjast niður að þá sá ég hana farin að tala við einhverja krakka. Stefán er aftur á móti svona feimnari típa og finnst hann ekki þurfa að tala við einhvern af óþörfu. Hann er líkur pabba sínum að þessu leiti. Ég afrekaði það að taka gestaherbergið í gegn og guð minn góður ekki veitti af!!! Ég fer á síðustu næturvaktina í kvöld þangað til næsta sunnudag og þá fara krakkarnir kannski suður í sveitina til Birgittu frænku sinnar. Ekkert smá mikið að gera hjá þessum börnum! Ég var einmitt að segja við hana Hrafnhildi vinkonu mína að hvað það er tómlegt og hvað ég er löt þegar að þau eru ekki heima. En aftur á móti eins og hún sagði að þá á maður samt að njóta þess bara að dúlla sér. Jæja ætla að hætta í bili.
Yfir og út.
12.6.2008 | 15:09
Gott að eiga góða vini.
Já ég bíst við því að það verði pínu einmannalegt hérna heima þegar að krakkarnir eru farin á ættarmót án múttu sinnar. En þetta er nú kannski bara eitthvað sem að maður hefur gott af líka, að þurfa ekki að hugsa um neitt annað en sjálfa sig svona til tilbreytingar.
Ég er að fara á 4 næturvaktir og byrja í kvöld. Ég á eftir að hafa nógan tíma til að sofa á daginn.
Ég hef sennilega ekki skrifað um það hvað ég á frábæran vinkonuhóp! Við erum af ýmsum stærðum og gerðum og aldri. við erum allar í 25+ hópnum og okkur finnst við æðislegar, sem að við erum að sjálfsögðu Okkur finnst gaman að hittast og spila og fá okkur í glas, rífa kjaft og gera okkur að fíflum. en ekki síður að hittast yfir góðri böku með krakkagrísina með okkur. Við getum alltaf leitað í hvora aðra með flest allt og gerum það ef við þurfum. En það er alltaf jafn sárt að sjá á eftir vini í burtu. en það er eitthvað sem að gerist með tímanum að fólk vill breyta til og prufa nýja hluti. Ég fæ alveg pínu hnút í magann þegar að mér er sagt að einhver sé að flytja í burtu og á erfitt með að melta svoleiðis hluti, því að ég vil bara hafa alla sem mér þykir vænt um í kringum mig. Ég er náttúrulega líka svoddan frekja og get ekkert af því gert
. Ég veit bara á endanum skila þær sér allar í 740 paradís.
Ógleymanlegt kvöld heima hjá Hrönsu
10.6.2008 | 23:02
Þriðjudagur þerris;)
Sumir skilja þessa fyrirsögn
Dagurinn hjá okkur byrjaði ekki mjög snemma, því jú jú hér eru víst allir í fríi. En ég væ bara samviskubit yfir því hvað við leyfum okkur að sofa lengi. Ingvar hringdi sko klukkan hálf 12 og það fyrsta sem að hann sagði: Ekki var ég að vekja ykkur? Og ég bara nei nei hvað heldur þú eiginlega að við séum he he. en svo sagði ég honum að við hefðum nú bara aðeins verið að kúra.
Krakkarnir eru að fara á ættarmót um helgina með Elsu ömmu og Valla afa. Ég kemst því miður ekki út af vinnu og finnst það ótrúlega leiðinlegt!!! Mig langar svo að fara og hitta fólkið og bara vera með börnunum mínum í útileigu. En það var víst ekki hægt að fá neina til að vinna fyrir mig í þetta skiptið. Svo var ég að heyra af ættarmóti í móðurætt mína sem á að halda á Frönskum dögum á Fárskrúðsfirði. Það er svo gaman að vera þar.
Jæja ætla að fara koma krökkunum í háttinn.
Bless í bili. Mynd tekin á Frönskum dögum 2007.
8.6.2008 | 22:43
Finnst þetta svo yndislegt myndband
7.6.2008 | 00:38
Elska sumarið!!!
Mér finnst sumarið yndislegur tími!!! Það verða allir eitthvað svo léttari og svo miklu meira hægt að gera. En ég get líka orðið pínu einmanna því að börnin mín eru að verða 7 og 9 ára í sumar og nenna ekki að gera eins mikið með mömmu og eru farin út hérna á morgnanna og koma inn á kvöldin. Já ég verða að passa mig að láta mér ekki leiðast, því að ég get það alveg. Eða kanski kallast það bara leti;) En ég er svosem ekkert búin að vera að því. Afrekaði það að slá garðinn minn í dag og lýsi hér með eftir einhverjum til þess að raka hann takk fyrir, því að það er bara frekar boring verð ég að segja. Við röltum til Stellu og Hafdísar í pizzu í kvöld. Bara æðislegt!
Bíð öllum góða nótt og eigið góðann dag á morgunn
4.6.2008 | 17:46
leti leti leti.....
Þetta er ekkert grín að vera svona latur! Ég bara geri voðalega eitthvað lítið þessa dagana. Það voru skólaslit í morgunn kl 10. og guð minn góður, það ætlaði bara enginn að geta vaknað. Eftir mikið tuð að þá komumst við nú loksins niður í skóla, og ég með rottu í hálsinum eins og síðustu morgna, eins og ég sé búin að vera stórreykingarmanneskja í 50 ár og hélt ég að hóstakastið tæki ekki enda. Ekki þægilegt.
Við afrekuðum það nú við mæðgur að fara í sund kl 14:00 með henni Rebekku okkar og Sólveigu og það vara bara nokkuð hressandi. Stefán sést ekkert alla daga nema svona til að ná sér í eitthvað að borða.
Já krakkarnir fengu vitnisburðinn eins og þetta er kallað í dag í staðin fyrir einkunnir. Aldrei má nú neitt vera í friði;) En þetta var bara fínt hjá þeim. Ég er bara þannig að ég geri ekki kröfur og kannski mætti ég vera aðeins harðari með það ég veit það ekki. Ég er samt ekki að segja að mér sé alveg sama. En annars að þá er það eins með Stefán og Elísabetu að þau fá bæði það sama í sambandi við vinnu í tímum. Þau eiga erfitt með athyglina og eru ekki mikið fyrir að fylgjast með það sem er sagt yfir bekkinn Bara nákvæmlega eins og móðir þeirra þegar að hún var í skóla. í minningunni þá finnst mér ég ekkert hafa lært og bara verið með skæting við kennarana. Ég veit í dag hvað var að mér og það var mikill athyglisbrestur og óþægð eins og það var kallað. nú eru komin fínni orð yfir þetta allt saman. Það er það sem hefur haldið mig frá skóla enn þann daginn í dag því miður. En ég er samt nokkuð viss um að ef ég færi í skóla í dag sem ég geri nú sennilega á endanum, þá mun ég nú reyna að rífa ekki kjaft við kennarann og trufla hina ekki mikið í kringum mig
.
En vá ég gæti skrifað hér endalaust núna en ætla að drulla mér að gera eitthvað.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 21:57
Sjómannadagshelgi að baki.
Já það er það upprifjun helgarinnar.. eða ekki
En annars var bara mjög gaman og mikið að gera. Yndislegt veður í 740 paradís eins og alltaf. Ingvar var ekki með í kappróðrinum þetta árið út af hendinni á sér en Barðamenn tóku þetta nú samt Síðan var farið út að borða. 3 rétta máltíð sem að var bara mjög góð fyrir utan að það er pínu þreytandi að bíða í rúma tvo tíma eftir forréttinum. Allir orðnir alveg glorhungraðir og vel í því eins sumum er sæmandi. Loksins eftir svoldið svona... hvað á ég að segja? skondna þjónustu he he, að þá fórum við í millipartý til Villa Harðar og Helgu. Það var mjög gaman og fólk í fullu fjöri. Ég skildi nú samt ekkert í því að mér fannst Ingvar alltaf verða fyllri og fyllri en sá hann aldrei með neitt glas
. Enda endaði kvöldið nú skrautlega og snögglega hjá sumum. En komst síðan að því að hann og einn félagi hans voru bara með víski flöskuna á milli sín og það voru sko ekki notuð nein glös takk fyrir.
Það þarf stundum svoldið mikið til að koma mér út af laginu þegar að ég er komin í glas og hef yfirleitt ekki nennt að pirra mig á þessu og hef bara haldið mínu striki með mínum vinkonum, en í þetta skiptið að þá bara gat ég það ekki og labbaði í mínum nýju skóm á mínum aumu löppum heim kl 2. Já svona endaði þá kvöldið sem að ég var búin að hlakka svo mikið til. En ég vaknaði líka hress í siglingu á sunnudagsmorgni
Nenni ekki meiru í bili. yfir og út.