30.5.2008 | 19:19
ALLT AÐ VERÐA VITLAUST!
Já ég segi nú ekki annað en guð sé lof að búa bara hér í sælunni fyrir austan
Get svona alveg ímyndað mér að fólk hafi nú orðið hrætt í þessum skjálfta og ég fékk alveg hroll þegar að ég sá viðtal við litla stelpu sem að var ein heima á meðan á þessu stóð og aumingja foreldrarnir að vita kannski ekki hvar börnin þeirra voru stödd!
En annars er líka um annað hugsa þessa helgi og það er sjómannadagur. Við förum út að borða 3 rétta máltíð annað kvöld og svo er ball með Páli óskari á eftir. bara fjör!
Við vorum upp á héraði að ná í Dalla, sem er að fara á fermingarbarnamót með árgangi "74.
Góða skemmtun öll. Þetta er svo hrikalega gaman að hittast svona og rifja upp gamla tíma.
En því miður fyrir suma voru þetta ekki góðir tímar, sem að okkar árgangur "81 fékk að kynnast þegar að við héldum 10 ára mót. Það voru því miður 2 manneskjur sem vildu bara alls ekki koma og hitta okkur vegna þess að þær upplifðu sína skólagöngu sem sára mynningu. Okkur fannst þetta öllum mjög leiðinlegt og reyndum að tala þær til en allt kom fyrir ekki og þær mættu ekki á mótið. Að mörgu leiti skil ég þessar manneskjur, en samt að þá vill ég að þetta fólk mæti og segi þá bara hreint og beint hvernig var fyrir þau að vera í skóla og taki þeir þá bara til sín sem að eiga. Og já ég get sko bara alveg sagt það að ég var ekki barnanna best í skóla og hef meira að segja beðið eina skólasystur mína afsökunar á því hvernig ég lét við hana stundum í barnaskóla. Ég skammast mín að segja frá þessu en það er líka gott að geta viðurkennt mistök sín
Góða skemmtun fyrir þá sem ganga um gleðinnar dyr um helgina og farið varlega. Og verið góð hvort við annað
28.5.2008 | 08:29
Þetta er nú alveg ótrúlegt!!!
Maður er bara gjörsamlega steiktur eftir þessa yndislegu sólardaga;)
Við erum að tala um 17 til 18 stig í skugga. En annars finn ég það samt að ég er latari í svona veðri. Þá meina ég svona heima fyrir. Ég nenni ekki að vera inni að taka til og guð má vita að þess er þörf. Ég var að koma af vakt og er bara eitthvað hálf slöpp Rosalega illt í hálsinum með einhverja beinverki. Þetta er eflaust eitthvað óþarfa væl! en ég verð bara svo sjaldan eitthvað lasin og þá er ég alveg ómögurleg. Enda er að koma sjómannadagshelgi og þá verður maður að vera í topp formi
Ingvar er að koma heim á morgunn og mig hlakkar svo til. Þetta er stóri kosturinn við að vera sjómannskona finnst mér, er að hlakka til þegar að kallinn kemur í land. Það er æðislegt og eitthvað svo góð tilfinning að sjá Barðann sigla inn fjörðinn.
Og á meðan að manni lýður þannig að þá veit maður líka að maður er in love ha ha ha. Ég hlít að fá einhver skíta comment út á þetta.
Hef þetta ekki lengra í bili. farið vel með ykkur og djammið um helgina.
25.5.2008 | 10:53
Er eitthvað betra?
Er eitthvað betra en þeir dagar sem að maður heyrir fuglana syngja og sólina skína? Þetta erum við búin að vakna við síðustu 2 morgna. Ég veit ekkert betra! Krakkarnir voru farnir út um 9 leitið og ég hef ekki séð þau síðan. Stefán var með næturgest, hann Ella vin sinn og þeir sofnuðu nú ekki snemma en voru vaknaðir fyrir allar aldir. Enda sennilega orðið ansi vel heitt inn í herbergi hjá þeim.
Þær mæðgur Sólveig og Rebekka Rán og mæðginin Anna og Gabríel Dan komu í jurovision pizzuparty í gærkvöldi og það var mikið stuð:) Rebekka og Gabríel voru í essinu sínu og dönsuðu við hvert lag þessar elskur. Eftir öll herlegheitin voru strákarnir ekki komnir inn á og að ganga hálf 11, var mér ekki farið að vera sama. En ég var viss um það að þeir væru bara hinumegin hjá ömmu og afa. En nei þeir voru ekki það þannig að ég og Elísabet tókum rúnt. og vitið menn hvað ég fann þá kl hálf 11. Niður við sjoppu á hjólabrettum!!! Vá hvað ég var reið! á Laugardagskvöldi!!! Ég náttúrulega sagði þeim að drulla sér inn í bíl og sagði þeim hvað klukkan væri og hvort að þeir hefðu fengi leyfi til þess að fara niður í bæ? ÚPPSS kom þá bara. æ við gleymdum okkur bara fékk ég þá að heyra. Já já 9 og 10 ára guttar bara í gírnum með restinni að unglingunum sem voru komnir vel í glas eftir að hafa verið að hvetja ísland áfram í jurovision. Þannig að það er komið bæjar bann á liðið.
En jæja ég er búin að ausa nóg í bili og hef nóg að gera í dag.
síja
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2008 | 18:30
PURRRRR.........
Flott fyrirsögn;)
Jæja þá er komin fimmtudagur. Vá hvað tíminn lýður hratt eitthvað þessa dagana! Ég og Solla mín tókum nú heilsugöngu í morgunn. Aldeilis duglegar! en enduðum síðan á kaffihúsinu með eina sneið af snikers ostaköku og kaffi þar endaði sú heilsuganga. Jón bróðir þar og æ við bara létum hann skutla okkur heim he he. Mega duglegar.
En annars var það bara ágætt því að fór síðan á starfmannafund í hádeginu. Sonur minn fékk nýtt hjól í dag, rosa flott, sérpantað frá Selfossi.
En jæja ég gefst upp á blogginu í dag því það eru komnir gestir.
ADIOS Í BILI.
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.5.2008 kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008 | 08:16
Það er nú bara þannig.
Stundum nenni ég ekki að byrja að skrifa bloggfærslu að því að ég veit ómögulega hver fyrirsögnin á að vera! Samt veit ég alveg um hvað ég ætla að skrifa Þetta er bara athyglisbresturinn í mér. Ég sit núna í mínum forláta náttslopp sem að er alveg að verða búin með allan sinn sjarma og krakkarnir farnir í skólann. Þannig að það er bara súper rólegt á bænum. eiginlega svo rólegt að ég bara veit eiginlega ekkert hvað ég á af mér að gera. Ég fæ svona nett í magann þegar að ég lít út í garð og sé allt ruslið og draslið
en garð vinna er sennilega bara það leiðinlegasta sem að ég geri!!! ég vil láta rífa trén í garðinum og fá mér girðingu og síðan malbika bara í kringum húsið;) smekklegt! er það ekki?
Ingvar kemur í land rétt fyrir sjómannadagshelgi og þá reyni ég nú kannski að vera búin að taka til svo að hann geti slegið garðinn. Það er sko eitthvað sem ég geri helst ekki.
En nú er ég búin að lesa yfir þessa færslu hjá mér og sé hvað hún er innantóm þannig að ég ætla bara að hætta í bili. læt fylgja mynd af bekknum hans Stefáns Inga og Villu kennaranum þeirra af skólaskemmtun.
19.5.2008 | 12:58
UTAN ÞJÓNUSTUSVÆÐIS!
Já hvað get ég sagt? ég var bara utan þjónustusvæðis í gær
Nú held ég bara svei mér þá að ég geti bara ekki fengið mér í glas eins og hérna áður fyrr. En ég meina com on! það er nú ekki eins og ég sé orðin eitthvað svo gömul. En allavega var mín faðmandi postulínið í gær eftir skemmtilegt kvöld heima hjá Sólveigu. Eftir brjálað fjör var stefnan tekin á barinn eða réttarasagt á ball eins og það var nú auglýst í Egilsbúð. En það var nú bara opið í stúkunni og við fengum sko ekki meira en minna að borga 1500 kall inn takk fyrir. Og ég verð bara að segja það að þessi blessaða hljómsveit var ekki þess virði sorry. En við stelpurnar gerðum nú bara gott úr þessu, enda ekki óvanar að því;)
Í dag er móri pínu að ásækja fyrir gærdaginn og stefnin er tekin á að gera eitthvað skemmtilegt með elsku börnunum mínum í dag.
Þannig að ég segi bara bless í bili og læt þessa reynslu mína mér að kenningu verða
17.5.2008 | 14:17
Jæja þá.
Jæja nú er ég bara hálf tóm eitthvað. Ég var á næturvakt í nótt og var vakin með símanum. Yfirleitt fer það í taugarnar á mér að vera vakin með símanum en það breyttist fljótt þegar að ég heyrði röddina. Það var Ingvar minn Loksins komnir í símasamband á sjónum. Hann var sprækur kallinn. En annars er svosem nóg að gera í dag. Hún Sólveig vinkona er að útskrifast í dag. og það er verið aðeins að arisera í kringum það og síðan verður svaka partý í kvöld hjá henni
OHHHH MIG HLAKKAR SVO TIL!!! Það hefur bara hist þannig á að ég er yfirleitt alltaf að vinna þær helgar sem að eitthvað er um að vera og á meira að segja að vera að vinna í nótt, en vann fyrir Gússý eina næturvakt síðustu helgi þannig að hún ætlar að vinna fyrir mig í nótt.
Ég samgleðst þeim öllum rosalega mikið sem eru að útskrifast núna eða á næstu dögum. því bara að umgangast þessar manneskjur sem eru að standa í loka prófum er bara ekkert smá! Þetta er gífurleg vinna sem að þarf að leggja á sig og mikið stress. Þannig að innilega til hamingju með daginn kæru vinkonur sem eru að ná þessum stóra áfanga
Bless kex og ekkert stress.
15.5.2008 | 10:14
KOMA SVO!!!
Ef ég mundi ekki búa í Neskaupstað og það væri ekki svona helv... dýrt að fljúga að þá væri ég sko með í þessum mótmælum núna! Maður er sko bara búin að fá sig fullsadda af öllum þessum hækkunum á öllu. Og þá meina ég öllu næstum því..! Mat, fötum, olíu, bensíni, flugi, fasteignagjöld, sorpgjöld, lánum fl.. og fl.. ég gæti talið upp helling. En málið er bara að það eiga bara allir að halda kjafti og láta þetta yfir sig ganga. Þessi helv.. ríkistjórn ætti bara að fara að taka eitthvað á sig og hætta að hækka launin við sig í samræmi við allar þessar hækkanir sem eru í gangi. Sorry hvað ég er æst en maður getur bara ekki verið annað þegar maður er að hlusta á fréttir eða taka bensín eða kaupa föt á börnin sín. Við erum að tala um 30% uppúr hækkun bara á barnafötum frá því á síðasta ári!!! pælið í þessu.
En já svona er gott að búa á Íslandi eða hvað? það er spurning.
Jæja ætla að hætta þessu tuði áður en ég segi einhverja vitleysu
kveðja Þóra pirruð með meiru.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2008 | 09:15
Já það er ekkert annað!
Ég held að ég fengi bara þokkalegt taugaáfall ef maður hefði nú fattað það að maður hefði nú gleymt eins og hálfs árs gömlu barni sínu á flugvelli einhverstaðar.
En annars var ég að koma af næturvakt sem að ég vissi ekki um fyrr en kl hálf 11 í gærkvöldi. Ég hélt að ég væri ekki að fara að vinna fyrr en í kvöld en það var einhver sem að ýtti í mig og sagði mér að ath það. Og að sjálfsögðu var það þannig og mín fékk nett stress kast og hringdi í litlu systir og ömmuna að koma og bjarga sér En það reddaðist síðan allt.
Elísabet Sif mín á nú til með að koma með nokkur gullkorn og er búin að vera tala mikið um það þegar að við förum til Tenerife í haust og sagði jafnframt að hún skildi nú reyna að suða ekkert rosalega mikið þegar að við værum úti he he. síðan kom svolítið löng þögn þegar að hún sagði síðan: Mamma, þegar að ég verð stór að þá ætla ég að ferðast rosalega mikið. Og ég svara já en gaman. Elísabet segir þá um hæl að hún ætli nú samt bara að eiga eitt barn. Nú segi ég, af hverju? Elísabet: Æ þá verður bara mynna tuð
Hún er svo yndisleg þessi elska.
![]() |
Gleymdu barninu á flugvellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2008 | 08:10
Æ bara svona í tilefni dagsins;) eru ekki allir glaðir?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)