16.11.2008 | 17:48
Svakalega rólegir dagar.
Það er eitthvað svo rólegt yfir öllum þessa dagana. Ég var á næturvakt og er varla búin að sjá börnin mín í sólahring;( Er síðan að fara aftur í kvöld og er þá komin í 10 daga frí. Uss ég er bara fegin.
Áskriftin á barnalandi er runnin út og ætla ég að geyma það aðeins að endurnýja hana. Það er alveg nóg að vera með bloggsíðu og myndasíðu á flickr já og ekki má gleyma facebookinu he he. verð bara dugleg að setja inn myndir á þetta allt saman.
25 + hópurinn er búin að vera alveg súper rólegur enda vantar nokkrar í hann. Það verður að vera einhver hittingur á milli jóla og nýárs þegar að flestar eru heima.
jæja nenni þessu bara ekki meir.
Góðar stundir öll og farið vel með ykkur.
Beta Sif
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:51 | Facebook
Athugasemdir
einhver værð er yfir mér í gær og í dag. ;)
Aprílrós, 17.11.2008 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.