5.12.2008 | 00:58
Jólaskap!
Það er greinilega ekki svo gefið fyrir alla að komast í jólaskap. Ég er tildæmis þannig að ég kemst ekki svo auðveldlega í þennan jólafíling eins og svo margir komast í þegar að lýða fer að jólum. Mér finnst það mjög leiðinlegt að vera ekki meira jólabarn og finnast þetta rosalega skemmtilegur tími að undirbúa jólin. Maður nefnilega tekur þátt í öllum þessum undirbúning og finnst það kannski ekkert annað en kvöð og pressa stundum. En ég er ekki að segja það að mér finnist þetta leiðinlegt og stundum dett ég í gírinn og verð alveg gasalega dugleg;)
Ég tildæmis sit hér og blogga og hlusta á jólalög. Og uppahalds lagið mitt er: Ef ég nenni með Helga Bjöss he he. Aðeins að reyna að koma mér í gírinn. Herbergið hans Stefán er orðið klárt. Búið að parketleggja, mála og hann kominn með nýtt rúm og fataskáp. Þvílíkur munur á einu herbergi! Enda er hann hin ánægðasti. Það verður síðan fljótlega byrjað á skvísu herbergin.
Jæja ætla að fara koma mér í háttinn. Ég og Sólveig vorum með klúbb hér heima hjá mér.
kjaftaátklúbb eins og kallinn minn kallar þetta
Set nokkrar nýjar myndir hér í albúm með fínu breytingunum á herberginu
Krakkarnir í fína nýja rúminu hans Stefáns.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég er ekki komin í jólagírinn, Til hamingju með að vera búin með herbergið .
Góða helgi til þin og kærleiksfaðmlag til þin;)
Aprílrós, 5.12.2008 kl. 07:42
Oh ég vildi að ég hefði getað mætt í klúbb hjá ykkur í gær. En nú er bara rétt rúmlega vika í að ég kíki í heimsókn.
Anna Kristín Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.