18.8.2008 | 20:42
Takk fyrir mig;)
Vil bara þakka kærlega fyrir mig til ykkar sem að komu til mín í dag
Maður á sko bara afmæli einu sinni á ári og þá á maður líka að njóta þess! Ég verð allavega vel lyktandi næstu vikur he he.
En annars gaf ég sjálfri mér gjöf í dag. Ég hef nú samt aldrei gert það áður. Mín fór bara og fékk sér eitt stykki tattoo!!! Já það er ekki oft sem að maður getur gert slíkt hér og ég hef lengi verið að spá í að fá mér akkúrat þetta á löppina. Þannig að það hefði ekki getað verið betra að fara á afmælisdaginn og skella stjörnumerkinu á sig
Þá held ég líka bara að þetta sé komið gott af bleki og verði ekki meir. En aldrei að segja aldrei he he. Á maður ekki eftir að skella nöfnunum á krakkastóðinu síðan á sig á síðari árum? kemur í ljós.
Jæja heyrumst síðar kæra fólk. læt fylgja mynd af fína ljóninu mínu með.
Þetta er samt pínu skrítin mynd af því.
enda bólgin og fín:)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:46 | Facebook
Athugasemdir
Ég vissi það :O) Rosalega flott tatto ég á eftir að fá mér hrútinn einhvern daginn
Til hamingju með daginn ég kíki á þig á morgun....
Njótu þess sem eftir er af deginum
Kveðja sigga magga
Sigga Magga (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 20:54
Til hamingju með afmælið, krúttan mín
SigrúnSveitó, 18.8.2008 kl. 21:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.