Tóm!

Ég er eitthvað svo tóm þessa dagana eða kallast það kannski að vera með ritstíflu?       Þetta er samt þannig að mér finnst ég þurfa að hafa eitthvað að segja til að geta sest niður og bloggað. En svo líka þegar að ég byrja að þá kemur líka eitthvað og maður kannski skrifar um eitthvað frekar ómerkilegt, eins og ég er td að gera núna.                    Það kom sól í dag! Alveg ótrúlegt en satt. Ég fór einmitt að hugsa það líka hvað maður verður örlítið svona léttari og orkumeiri, eins og eðlilegt er. Ég er samt búin að vera bara nokkuð sátt hérna í kuldanum og þokunni þó að þetta fari alveg í mann að fá ekkert sumar. EN ég held að ég viti líka ástæðuna og hún er Tenerife í sept. Við  hljótum að fá einhverja sól þar.
En eins og ég sagði að þá er ég frekar tóm læt  þetta gott í bili. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Úrsúla Manda

Til hamingju með daginn Þóra mín

Úrsúla Manda , 18.8.2008 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband