leti leti leti.....

Þetta er ekkert grín að vera svona latur! Ég bara geri voðalega eitthvað lítið þessa dagana.       Það voru skólaslit í morgunn kl 10. og guð minn góður, það ætlaði bara enginn að geta vaknað. Eftir mikið tuð að þá komumst við nú loksins niður í skóla, og ég með rottu í hálsinum eins og síðustu morgna, eins og ég sé búin að vera stórreykingarmanneskja í 50 ár og hélt ég að hóstakastið tæki ekki endaPinch. Ekki þægilegt.
Við afrekuðum það nú við mæðgur að fara í sund kl 14:00 með henni Rebekku okkar og Sólveigu og það vara bara nokkuð hressandi. Stefán sést ekkert alla daga nema svona til að ná sér í eitthvað að borða. 
Já krakkarnir fengu vitnisburðinn eins og þetta er kallað í dag í staðin fyrir einkunnir. Aldrei má nú neitt vera í friði;) En þetta var bara fínt hjá þeim. Ég er bara þannig að ég geri ekki kröfur og kannski mætti ég vera aðeins harðari með það ég veit það ekki. Ég er samt ekki að segja að mér sé alveg sama. En annars að þá er það eins með Stefán og Elísabetu að þau fá bæði það sama í sambandi við vinnu í tímum. Þau eiga erfitt með athyglina og eru ekki mikið fyrir að fylgjast með það sem er sagt yfir bekkinnFootinMouth Bara nákvæmlega eins og móðir þeirra þegar að hún var í skóla. í minningunni þá finnst mér ég ekkert hafa lært og bara verið með skæting við kennarana. Ég veit í dag hvað var að mér og það var mikill athyglisbrestur og óþægð eins og það var kallað. nú eru komin fínni orð yfir þetta allt saman. Það er það sem hefur haldið mig frá skóla enn þann daginn í dag því miður. En ég er samt nokkuð viss um að ef ég færi í skóla í dag sem ég geri nú sennilega á endanum, þá mun ég nú reyna að rífa ekki kjaft við kennarann og trufla hina ekki mikið í kringum migLoL

En vá ég gæti skrifað hér endalaust núna en ætla að drulla mér að gera eitthvað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband