28.5.2008 | 08:29
Þetta er nú alveg ótrúlegt!!!
Maður er bara gjörsamlega steiktur eftir þessa yndislegu sólardaga;)
Við erum að tala um 17 til 18 stig í skugga. En annars finn ég það samt að ég er latari í svona veðri. Þá meina ég svona heima fyrir. Ég nenni ekki að vera inni að taka til og guð má vita að þess er þörf. Ég var að koma af vakt og er bara eitthvað hálf slöpp Rosalega illt í hálsinum með einhverja beinverki. Þetta er eflaust eitthvað óþarfa væl! en ég verð bara svo sjaldan eitthvað lasin og þá er ég alveg ómögurleg. Enda er að koma sjómannadagshelgi og þá verður maður að vera í topp formi Ingvar er að koma heim á morgunn og mig hlakkar svo til. Þetta er stóri kosturinn við að vera sjómannskona finnst mér, er að hlakka til þegar að kallinn kemur í land. Það er æðislegt og eitthvað svo góð tilfinning að sjá Barðann sigla inn fjörðinn.
Og á meðan að manni lýður þannig að þá veit maður líka að maður er in love ha ha ha. Ég hlít að fá einhver skíta comment út á þetta.
Hef þetta ekki lengra í bili. farið vel með ykkur og djammið um helgina.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ekkert skítakomment frá mér, mín kæra. Hvað er betra en vera ástfangin og ánægð?! Ég veit bara að ef ég hætti að finna fyrir gleði í hjartanu yfir Einari þá get ég pakkað saman og farið...en ég veit að það gerist ekki
Velkomin í bloggheima og takk fyrir að biðla til mín um bloggvináttu.
Knús...
SigrúnSveitó, 28.5.2008 kl. 10:45
Hæ Þóra mín
já veðrið er sko búið að leika við okkur núna síðustu daga enda allir ýkt brúnir og sætir orðnir
Hlakka til að djamma með ykkur um helgina við tókum vel á þessu er þaggi .. ég er að tala um eins og við lentum í fyrra röltið heim sem tók 1 klst sko hahaha þegar sumir voru ansi blekaðir
Jæja dúlla alltu áfram að vera dugleg að blogga svo gaman að lesa hérna hjá þér
Með sólarkeðjum frá NESK
Hugga flatbrjósta
Hugga (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 12:53
Æ verð ég ekki að skíta e-ð á þetta .. Geðveikt bitur nee sleppi því núna
Við verðum æði á Palla .. Ekkert annað, enda erum við aldrei annað en ÆÐI !! Og Þóra þú verður nú að fara að taka þig saman í andlitinu, sólhattur á liðið ..
Yfir og út .. í bili ..
Hrafnhildur .. Sem er sko ekki flatbrjósta
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 00:38
Oh... Væri alveg til í að vera "in love".... Er ekki draumakarlinn minn þarna? Einhver sem vantar góða konu eins og mig
Les þig reglulega, er bara löt að kommenta elskan...
x Heba
Heba (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 08:58
Hvaða flatbrjósta tala er þetta, ég bara roðna Hvað eða hvern eru þið vinkonurnar að tala um þessa dagana
Ég er sammála Sigrúnu sys , samt var þetta pínu væmið en það er allt í lagi svona stundum
Sjáumst á balli
Kv MK
María Katrín Jónsdóttir Ármann, 30.5.2008 kl. 12:13
Ha Ha Ha ..
Við erum nú bara að tala um hana Huggu sætu sem ætlar að liggja flatbrjósta í garðinum hennar Þóru í sumar .. E-ð farið að slá saman hjá henni
Já .. Allir á ball !!
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.