Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
12.5.2008 | 12:23
Með sól í hjarta.
Ég bara er frekar svekt við sjálfa mig að hafa sofið svona leingi í morgunn! Það er frábært veður úti og mín bara að deyja úr þreytu eftir að hafa aðeins kikt út í gær og fengið mér 2 rauðvínsglös með vinkonunum Þetta er kannski bara rétt hjá Hafþóri bróðir að ég sé bara að verða of gömul fyrir þetta. Eða hvað? En það verður nú samt djammað næstu helgi þegar að Sólveig útskrifast!!! Erum að pæla að kikja í sund í dag svona eitthvað dúllerí. Þannig að ég bara skrifa meira kvöld ef að ég held ekki áfram að vera svona tóm.
Kveðja Þóran.
11.5.2008 | 15:26
Leti dagur!
Svona hátíðisdagar eru yfirleitt bara leti dagar á þessu heimili. Ég kom af næturvakt kl 8 í morgunn og skreið upp í rúmið mitt þar sem að Karítas systir svaf á sínu græna eftir að hafa verið hjá krökkunum í nótt á meðan ég var að vinna. Ég reif mig svo á lappir um hádegi en það var bara ansi erfitt. Við skelltum okkur síðan í sund og tókum síðan ís rúnt.
Erum nú samt að fara í fermingu núna kl 16:00. Það er ágætt að hafa eitthvað fyrir stafni.
En annars er ég búin að vera að hlaða inn fullt af myndum og margt ókomið enn.
Er hætt að í bili að röfla um ekki neitt og bið bara að heilsa
Ég vil óska fermingarbörnum til hamingju með daginn í dag.
10.5.2008 | 20:51
KANNSKI EKKI NÓG OG HÁFLEIG?
Mér sýnist svona á bloggunum hér inn á mbl að fyrisagnirnar eru eitthvað svo háfleigar! Þetta er kanski bara ekki staður fyrir mig að vera að blogga hér eða hvað? Æ ég fór bara svona að hugsa þetta þegar að ég var hlaða inn öllum djamm myndunum svona í gegnum tíðina frá árunum "05 til "08 að þetta ætti bara ekki við En ætla að halda því samt áfram og er rétt svo hálfnuð með þetta
svoldið stórt myndasafn.
Jæja bless í bili er að fara á næturvakt í kv.
9.5.2008 | 14:30
Eru börn það sem fyrir þeim er haft?
Ég hef oft velt fyrir mér þessari settningu, og þá líka hvað ég sé að gera í mínu foreldrahlutverki. Ég held að þetta sé ekki alfarið rétt því að annars held ég að ansi margir og þar á meðal ég mundu ekki teljast hæfir foreldar ef það ætti að dæma foreldra út frá hegðun barna. En það sem að ég held jafnframt er að börn eru oft innrætt eins og þau eru alin upp og þá meina ég í samskiptum við önnur börn. Ég varð vitni af einu tilfelli í morgunn sem að ég bara átti ekki til orð yfir á milli 3 stelpna. þar sem að tvær þeirra ráku eina út úr húsinu sem að ein þeirra átti heima, út í hríðarbil fékk hún að fara á peysunni einni saman og létu hana ekki fá úlpuna sína né skólatösku! Ég mætti þessari 7 ára stelpu alveg hágrátandi og hríðskjálfandi á leiðinni heim, sem var þónokkur spölur. Ég keyrði henni að ná í úlpuna sína og töskuna og síðan heim.
Þegar að ég kom heim til mína að þá fór ég bara virkilega að hugsa um þetta og afhverju geta börn verið svona við hvort annað? Er þetta okkur foreldrum að kenna hvernig samskipti barna okkar eru við önnur börn?
Hefur einhver góð svör við þessu? ef svo er lát heyra;)
Jæja þá er ég búin að koma frá mér hugsunum dagsins og kannski pínu vonast til þess að fá nokkur svör við þeim ef að einhver er fróður um svona mál eða hefur eitthvað til málana að leggja
8.5.2008 | 21:12
JÆJA ÞÁ ÞETTA TÓKST.
jæja þá tókst þetta að lokum og þetta er allt spurning um stærð á myndunum þegar maður er að hlaða þær inn.
Þá ætla ég bara að vera dugleg að bæta inn í safnið gamalt og nýtt.
Já og svo kannski hripar maður niður nokkrum línum í leiðinni. Bless og farið vel með ykkur kæru vinir.
8.5.2008 | 17:08
ÞETTA ER BARA EKKI AÐ VIRKA!!!
Jæja mín bara búin að stofna enn eitt bloggið En samt svona í öðrum tilgangi en að blogga. Ætlaði mér að skella öllum myndunum mínum hingað inn svona til gamans og geymslu. En málið er að ég byrjaði að hlaða inn myndum og það bara gerðist allt mjög hægt eða bara ekki neitt. Ég fór bara út og ætlaði bara svona að leyfa þessu að malla en eftir 2 tíma kikti ég á þetta og þá var komin upp villa útaf einhverjum helvítis cookies sem ég þarf að sýna
ég þoli ekki svona vesen og kann ekkert á svona heldur.
Jæja ætla að sjá til hvort að þetta gangi eitthvað.
Adios í bili.